ATH.: Upplýsingarnar sem hér koma fram eru úreltar. Skoðið frekar Framúrskarandi fyrirtæki 2021.

214 Vínnes ehf.

Stærðarflokkur Meðalstórt
Röð innan flokks 43
Landshluti Höfuðborgarsvæði
Atvinnugrein Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum
Starfsemi Heildverslun með sykur, súkkulaði og sælgæti
Framkvæmdastjóri Birkir Ívar Guðmundsson
Fyrri ár á listanum 2016–2019
Framúrskarandi 2020

Hvernig gengur reksturinn?

Eignir 939.795
Skuldir 350.261
Eigið fé 589.534
Eiginfjárhlutfall 62,7%
Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna

Eigendur og eignarhald

Þekktir hluthafar 1
Endanlegir eigendur 1
Eignarhlutur í öðrum félögum 0
Endanleg eign í öðrum félögum 0

Lánshæfismat félaga í sömu grein

Meðallánshæfi félaga í atvinnugreininni Heildverslun með matvæli, drykkjarvöru og tóbak

pila

Tiltölulega áhættulítil

Meira um fyrirtækið hjá CreditInfo

Liðsheildin skiptir miklu máli

Birkir Ívar hefur stýrt Vínnesi frá árinu 2013.
Birkir Ívar hefur stýrt Vínnesi frá árinu 2013. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Flestir kannast við Birki Ívar Guðmundsson þar sem hann hefur staðið á milli stanganna í handboltanum, bæði fyrir íslenska landsliðið á mörgu stórmótinu en einnig fyrir félagslið hér heima og erlendis. Færri vita að hann stýrir Vínnesi sem flytur inn mörg af þekktustu vörumerkjum vínheimsins. Hann segir að tilviljun hafi ráðið því að hann fór að starfa á þessu sviði.

„Ég hóf störf í byrjun árs 2013. Fyrirtækið hafði árin á undan stækkað töluvert hratt og eigendur þess höfðu ekki, vegna annarra verkefna, þann tíma sem þurfti til þess að sinna fyrirtækinu. Þeir höfðu því samband við mig og buðu mér þetta starf sem ég þáði eftir stuttan umhugsunartíma. Flóknara var það nú ekki.“

Hann segir daglegar áskoranir margar en mismiklar. Nú þegar kórónuveiran gengur yfir þurfi fyrst og síðast að tryggja að ef smit komi upp í fyrirtækinu þá geti það áfram starfað og einnig þurfi að hafa fyrir því að tryggja nægt magn birgða til landsins.

„Þessi bransi er að einhverju leyti frábrögðin mörgum öðrum vegna einkasöluleyfis ÁTVR á smásölumarkaði og banni við áfengisauglýsingum. Áfengisumboð þurfa því að keppa hvert við annað á einungis tveimur söluráðum, vöru og verði.

Önnur áskorun er að undirbúa fyrirtækið undir það ef verulegar breytingar eru gerðar á rekstraumhverfinu, en hvert ár er lagt fram frumvarp til Alþingis um annaðhvort afnám ÁTVR að hluta eða í heild sinni. Komi til þess að Alþingi samþykki slíkt frumvarp þá mun það auðvitað gerbreyta rekstrarumhverfi allra fyrirtækja í þessum bransa.“

Má aldrei sofna á verðinum

Að öðru leyti segir hann mikilvægt, líkt og í öðrum rekstri, að sofna ekki á verðinum, prófa sífellt ný vörumerki, finna nýja markaði og uppfylla þarfir viðskiptavina með því.

Spurður út í tengsl íþróttanna og þeirra starfa sem hann sinnir í dag segir Birkir Ívar að hann hafi ekki nýtt sér reynsluna úr íþróttunum með meðvituðum hætti. Hann segir þó að iðkun íþrótta til margra ára móti ákveðinn hugsanahátt.

„Eins og í hópíþrótt þá hefur það alltaf verið mitt markmið að öllu starfsfólki líði vel og fái tækifæri til að nýta sína styrkleika. Eins þá er ég mjög meðvitaður um það að það gerist ekkert af sjálfu sér. Allt afreksíþróttafólk þekkir það vel að til þess að ná árangri þá þarf að leggja í vinnuna.“

Hann segir það helsta styrkleika Vínness að hjá fyrirtækinu starfi öflugur hópur og að starfsmannaveltan sé mjög takmörkuð.

„Við erum líka ákaflega stolt af vörumerkjunum okkar sem eru mörg hver ekki bara leiðandi á Íslandi heldur einnig á heimsmælikvarða.

Ef við undanskiljum tvo ofangreinda þætti þá tel ég að stór ástæða þess að við höfum náð árangri er að við höfum alltaf leitast eftir að gera hlutina eins einfalda og mögulegt er. Fyrirtækið er því alfarið laust við flókna og illskiljanlega ferla sem enginn getur almennilega fylgt.“

Birkir Ívar segir að neysluvenjur Íslendinga hafi ekki breyst mikið frá því að hann hóf störf hjá Vínnesi.

Alltaf einhver tíska í gangi

„Í áfengi eins og öðrum geirum þá myndast ákveðnar tískubólur sem koma og fara en heilt yfir þá er áfengismarkaðurinn nokkuð stöðugur og breytingar gerast hægt.

Það sem er kannski helst að breytast núna og ég tel að muni halda áfram næstu árin, er að neytendur eru að hugsa meira um heilbrigðan lífsstíl, þar með talið í áfengi. Þessi hópur skiptist svo í tvennt, annars vegar hópurinn sem hefur ákveðið að annaðhvort takmarka neyslu áfengis eða sneiða alveg fram hjá henni. Hinn hópurinn neytir enn þá áfengis en kýs frekar lífræna framleiðslu, lágt hitaeiningainnihald, o.s.frv. Það eru tækifæri til þess að sinna báðum þessum hópum. Til dæmis hófum við sölu á Stella Artois 0,0% í matvöruverslunum fyrir nokkrum mánuðum. Þrátt fyrir að innihalda ekkert áfengi og einungis 60 hitaeiningar þá skína gæði Stella Artois í gegn.“

Á næsta ári áætlar Vínnes flutninga í nýtt og glæsilegt húsnæði í Korngörðum 3 en þar verður systurfyrirtækið, Innnes, einnig til húsa.

„Þótt fyrirtækin verði áfram rekin hvort í sínu lagi þá munu opnast tækifæri til að nota reynslu hvort annars enn þá betur en við gerum í dag. Við horfum því bjartsýn á framtíðina.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Fleiri greinar og viðtöl

Samstarfsaðilar