Bankarnir ekki eins háðir efnahagsumhverfinu samkvæmt Fitch

Fitch Ratings, sem metur lánshæfi opinberra aðila og fyrirtækja, segir í nýrri skýrslu íslenska bankakerfið hafa tekið róttækum breytingum undanfarin ár og að bankarnir séu nú minna háðir innlendu efnahagsumhverfi en áður. Þetta telur sérfræðingur Fitch jákvæða þróun, að því er fram kemur í Morgunkorni Glitnis.

Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að það hafi þó haft í för með sér ný vandamál og verkefni, sér í lagi hvað varðar áhættustjórnun og samþættingu þeirra erlendu rekstrareininga sem keyptar hafi verið undanfarið.

Í nýútkominni skýrslu fyrirtækisins um íslenska fjármálakerfið er nefnt að eignir bankanna hafi fimmfaldast á undanförnum þremur árum og að rekstur þeirra byggi nú á alþjóðlegri fjármögnun fremur en innlendri. Þessi fjármögnunarleið sé mjög háð andrúmslofti á markaðinum eins og hafi sýnt sig á vordögum.

Í skýrslunni er stuttlega farið yfir efnahagsþróun hérlendis og ástæður fyrir breytingu á mati Fitch á horfum fyrir lánshæfi íslenska ríkisins úr stöðugum í neikvæðar. Segja Fitch-menn að framtíð lánshæfismats ríkisins velti á því hversu hratt núverandi ójafnvægi í hagkerfinu gangi til baka og með hvaða hætti aðlögunin verður. Þeir telja samræmi í stjórn ríkisfjármála og peningamálastjórn ábótavant og segja það auka líkurnar á harðri lendingu hagkerfisins.

Fitch hefur enn sem fyrr áhyggjur af krosseignarhaldi íslenskra fyrirtækja en segja þó þróun hafna í þá átt að bæta þar úr. Einnig felist áskorun fyrir bankana í því að samþætta rekstur þeirra eininga sem keyptar hafi verið erlendis, en þó hafi vel tekist til hingað til. Þeir telja einnig að rekstrarafkoma bankanna ætti að verða ásættanleg jafnvel þótt til samdráttar komi hérlendis, ekki síst vegna landfræðilegrar dreifingar á rekstrinum og styrkri kostnaðarstjórnun. Yfir það heila virðist hin nýja skýrsla fremur jákvæð fyrir íslenska banka, þótt einnig séu dregnir fram áhættuþættir og bent á ýmis úrlausnarefni, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK