Fleiri starfslokasamningar verða ekki gerðir hjá Glitni

Þorsteinn Már Baldvinsson.
Þorsteinn Már Baldvinsson. Árvakur/RAX

Þorsteinn  Már Baldvinsson, nýkjörinn formaður stjórnar Glitnis segir að meðan hann sitji sem formaður, verði ekki gerðir frekari starfslokasamningar. Því megi viðskiptavinir og hluthafar Glitnis treysta.

Þetta kemur fram í viðtali við Þorstein Má í Morgunblaðinu í dag.

Þorsteinn útilokar ekki að síðar verði gerðir kaupréttarsamningar við starfsmenn bankans, en segir að slíkir samningar verði háðir því að raunverulegur árangur náist. „Ég tel að starfsmenn eigi að hafa ávinning af því þegar fyrirtæki gengur vel,“ segir Þorsteinn Már.

Kostnaður niður um þónokkra milljarða

Þorsteinn boðar umtalsverða lækkun kostnaðar í bankanum og segir að hún muni nema þónokkrum milljörðum króna. „Í dag starfar bankinn í 11 löndum. Ég sé ekki endilega fyrir mér að hann geri það í lok þessa árs,“ segir Þorsteinn Már, en vill ekki að svo stöddu tilgreina hvar er líklegt að starfsemi Glitnis verði hætt á árinu.

Fram kemur í máli Þorsteins Más að ráðningarstopp ríkir í Glitni í dag. Miðað við starfsmannaveltu á bilinu 10% til 15%, gæti það jafngilt fækkun starfsmanna á árinu um 230 til 270 manns, hér á Íslandi og í öðrum löndum. Þorsteinn Már segir að ekki sé hægt að bjóða starfsfólki bankans upp á óvissu um atvinnu sína í marga mánuði. Stjórn og stjórnendur Glitnis verði að ákveða á næstu vikum hvað verði gert.

Vill sameiningu í bankakerfinu

„Sameining fjármálafyrirtækja er orðin óhjákvæmileg,“ segir Þorsteinn Már og nefnir í því sambandi að hagstætt gæti verið að Glitnir og einhverjir sparisjóðir sameinuðust. Þorsteinn Már telur brýnt að lífeyrissjóðirnir verði á ný stórir hluthafar í Glitni. Þeir séu eftirsóknarverður og kröfuharður fjárfestir sem veiti gott aðhald. Hann tilgreinir þó ekki hver eða hverjir í hópi stærri hluthafa Glitnis ættu að selja lífeyrissjóðunum hluti þannig að þeir gætu komið af afli inn í bankann, hafi þeir á annað borð áhuga á slíkri fjárfestingu.
Í hnotskurn
» Starfsmannavelta er 10-15% hjá Glitni. Starfsmenn Glitnis eru alls 2.250, þar af um 1.200 á Íslandi. Ráðningarstopp ríkir.
» Þorsteinn Már tók við formennskunni að ósk stærsta hluthafans í Glitni, FL Group – og þar með Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns FL Group.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK