Glitnir Privatøkonomi svipt réttindum af norska fjármálaeftirlitinu

Dótturfélag Glitnis í Noregi, Glitnir Privatøkonomi, hefur verið svipt heimild til þess að sinna fjárfestingaráðgjöf til norskra viðskiptavina af norska fjármálaeftirlitinu, samkvæmt frétt á vef Aftenposten.

Már Másson, forstöðumaður kynningarmála hjá Glitni segir úrskurð norska fjármálaeftirlitsins snúa að innri ferlum Glitnir Privat Ökonomi sem er dótturfélag Glitnir Bank ASA í Noregi. 

„Starfsemi Glitnir Privat Ökonomi er óverulegur hluti af starfsemi bankans í Noregi.  Starfsleyfissviptingin snertir sölu á afmökuðum  fjármálaafurðum. Þessi hluti þjónustunnar stendur undir um 20% tekna Glitni Privat Ökonomi og mun hafa mjög takmörkuð áhrif á rekstur félagsins í Noregi og lítil sem enginn samstæðuna í heild.  Starfsemi GPÖ mun því halda áfram óbreytt að mestu leyti og áfram verður unnið að því að lagfæra innir ferla félagins. Við eigum í nánu samstarfi við Kredittilsynet hvað það varðar.
 
Þetta er vissulega óheppilegt og bankinn tekur þetta alvarlega. Bankinn hefur verið að  endurskipuleggja rekstur þessa norska félags síðan það var keypt að fullu í nóvember síðastliðnum. Því ferli var svo flýtt enn frekar þegar ljóst var yfirvöld í Noregi ætluðu sér að stöðva sölu á slíkum fjármálaafurðum á norska markaðnum almennt," segir Már. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK