Mesta verðbólga í tæp 18 ár

Hækkun á olíuverði er meðal þess sem hafði áhrif til …
Hækkun á olíuverði er meðal þess sem hafði áhrif til hækkunar mbl.is/Frikki

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí hækkaði um 1,37% frá fyrra mánuði. Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 12,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 11,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4% sem jafngildir 28% verðbólgu á ári (32,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis). Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili hefur ekki verið jafn mikil frá því í ágúst 1990 eða í tæp átján ár er hún mældist 14,2%. Í maí í fyrra mældist verðbólgan 4,7% en 4% í júní. 

Verð á bensíni og olíum hækkar um 5,7%

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,48% frá apríl. Gengissig krónunnar og erlendar verðhækkanir halda áfram að skila sér út í verðlagið og hækkaði verð á innfluttum vörum um 1,7% (vísitöluáhrif 0,61%). Verð á bensíni og olíum um 5,7% (0,26%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,9% (0,23%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,2% (-0,04%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,15% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,11%. Þá hækkaði kostnaður vegna viðhalds og viðgerða húsnæðis um 5,7% (0,27%).

Meiri hækkun heldur en greiningardeildir spáðu

Er þetta meiri hækkun á vísitölu neysluverðs heldur en greiningardeildir bankanna spáðu. Greiningardeild Landsbankans spáði 1,2% hækkun vísitölunnar,   Greiningardeild Kaupþings spáði 1,6% hækkun og Greining Glitnis spáði  1,2% hækkun vísitölu neysluverðs í maí.

Þróun verðbólgunnar frá árinu 1988 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK