Verkefni GGE munu verða færri og stærri

Ásgeir Margeirsson forstjóri GGE, Adam Wolfensohn og Ólafur Jóhann Ólafsson, …
Ásgeir Margeirsson forstjóri GGE, Adam Wolfensohn og Ólafur Jóhann Ólafsson, stjórnarformaður GGE. Geysir Green Energy

Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time Warner-fjölmiðlasamsteypunnar, er nýr hluthafi í Geysir Green Energy og hann var kjörinn stjórnarformaður félagsins á hluthafafundi í gær.

Ólafur Jóhann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ný stjórn væri sammála því að félagið myndi í framtíðinni einbeita sér að færri og stærri verkefnum.

„Við munum fremur verða ráðandi í þeim verkefnum sem við ráðumst í og geta þannig betur hlúð að því sem við eigum,“ sagði Ólafur Jóhann.

Á fjórum markaðssvæðum

Í máli hans kom fram að verkefni Geysir Green verða á næstunni einkum á fjórum markaðssvæðum, því íslenska, bandaríska, þýska og kínverska.

„Í Þýskalandi er fyrirtækið byrjað að bora eftir heitu vatni. Þar er fyrirtækið með frekari leyfi til borana og verkefnastaðan lítur mjög vel út því orkuverð í Þýskalandi er mjög hátt og markaður fyrir græna orku er því mjög vænlegur í því landi,“ sagði Ólafur Jóhann.

Hann bindur einnig miklar vonir við samstarfsverkefni GGE við kínverska stórfyrirtækið Signopec um byggingu hitaveitna í Kína.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK