Bréf Norsk Hydro lækka eftir afkomuviðvörun

Verksmiðja Norsk Hydro í Sunndal.
Verksmiðja Norsk Hydro í Sunndal.

Gengi hlutabréfa norska stórfyrirtækisins Norsk Hydro ASA lækkaði um 12% í morgun eftir að fyrirtækið sendi frá sér afkomuviðvörun og sagði útlit fyrir að hagnaður á öðrum ársfjórðungi hefði verið um 1,6 milljarðar norskra króna fyrir skatta. Á fyrsta ársfjórðungi var hagnaðurinn 2 milljarðar norskra króna.

Hydro sagði að þrátt fyrir hækkandi álverð hefði kostnaður við álframleiðslu aukist umtalsvert á tímabilinu.  Þá hafi hækkandi raforkuverð í Noregi einnig haft áhrif. 

Árshlutauppgjör Norsk Hydro verður birt 22. júlí.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK