Olían 9% lægri en í síðustu viku

Verð á hráolíu hefur lækkað í dag um 0,2% og kostar fatið nú, á hádegi í New York, rúma 134 dali. Olían hefur þannig lækkað um 13 dali, eða 8,9%,  frá 147 dala meti síðustu viku samhliða því sem eftirspurn í Bandaríkjunum hefur dregist saman.

Þá hafa væntanlegir samningar milli Bandaríkjanna  og Íran dregið úr áhyggjum, samkvæmt vef Bloomberg.

Í hverju hráolíufati eru tæpir 159 lítrar og verð á lítra er því, miðað við núverandi gengi, tæpar 65 krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK