Tvær hvítbækur í smíðum um starfsemi bankanna

Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, mun njóta fulltingis starfsmanna efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, Fjármálaeftirlits, Samkeppniseftirlits og skattrannsóknarstjóra í athugun á því hvort eitthvað í starfsemi gömlu bankanna gefi tilefni til rannsóknar og eftir atvikum saksóknar á grundvelli laga um meðferð opinberra mála.

Bogi var fenginn til verksins af Valtý Sigurðssyni ríkissaksóknara. Björn Bjarnason kynnti rannsóknina á bönkunum á Alþingi fyrir réttum tveim vikum, þar sem kom fram að ríkissaksóknari myndi hafa forystu um skýrslugerð um starfsemi bankanna. Slík skýrsla á að vera tilbúin fyrir lok þessa árs.

Ekki fengið starfsmenn

Aðspurður segir Bogi Nilsson að hann hafi ekki fengið formlega til sín neina starfsmenn, en hann hafi fengið gögn frá Fjármálaeftirlitinu [FME]. „Það var tilnefndur tengiliður af hálfu FME sem við höfum verið í sambandi við,“ segir Bogi. Hann segir það í athugun hvort hann fái til sín einhverja starfsmenn ef af skýrslugerðinni verði.

„Fjármálaeftirlitið vinnur að þessum málum og það eru endurskoðendur í öllum bönkunum sem eru að yfirfara gögn,“ segir Bogi. Hann vill ekki gera of mikið úr skýrslugerðinni, það sé ekki venjan að ákæruvaldið geri skýrslur. Hann segir að engin vinna sé hafin í bönkunum af hálfu ríkissaksóknara, en verið sé að leggja á ráðin um hvernig að henni verði staðið. Valtýr Sigurðsson lýsti því yfir í síðustu viku að það væri æskilegt að erlendir sérfræðingar kæmu að athuguninni.

Forsætisráðherra hefur sagt að hann vilji láta gera „hvítbók“ um bankana, en ekkert liggur fyrir um hvernig að henni verði staðið, samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu. Ef af skýrslugerð ríkissaksóknara verður liggur því fyrir að tvær skýrslur verða gerðar um starfsemi bankanna.

Í hnotskurn
» Dómsmálaráðuneytið vinnur að löggjöf um stofnun sérstaks rannsóknarembættis sem verður tímabundið að störfum.
» Embættið mun annast rannsókn og eftir atvikum saksókn vegna þeirra réttarbrota sem koma í ljós í tengslum við hrun bankanna.
» Dómsmálaráðherra vill kanna grundvöll fyrir sérstakri þingnefnd sem gæti fylgst með framvindu mála.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK