Svíar vildu ekki skipta við Íslendinga

Sænski seðlabankinn synjaði íslenska ríkinu um gjaldmiðlaskipti á grundvelli gjaldmiðlaskiptasamnings (e. swap-line) sem ríkin höfðu áður gert með sér. Íslendingar hafa þegar fengið 200 milljón evrur frá norska seðlabankanum og sömu upphæð frá þeim danska á grundvelli gjaldmiðlaskiptasamninga, en hafa ekkert fengið frá sænska seðlabankanum ennþá.

Tomas Lundberg, fjölmiðlafulltrúi sænska seðlabankans, Riksbank, segir i samtali við Bloomberg-fréttaveituna að bankinn hafi fengið fyrirspurn frá Íslendingum en hafi ekki viljað framkvæma skiptin fyrr en lánamál íslenska ríkisins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn séu komin á hreint.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK