Rannsókn til þess fallin að eyða vafa um rekstur Stoða

Stjórn Stoða hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að rannsókn skattrannsóknarstjóra sé til þess fallin að eyða vafa um ákveðna þætti í rekstri félagsins sem sætt hafa gagnrýni. Muni starfsmenn félagsins gera allt sem í þeirra valdi sé til að auðvelda starfsmönnum skattrannsóknarstjóra vinnu sína.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

„Stjórn Stoða (áður FL Group) vill upplýsa að starfsmenn skattrannsóknarstjóra komu í dag, 11. nóv. 2008, á skrifstofu Stoða og óskuðu eftir afriti af bókhaldsgögnum félagsins síðastliðin þrjú rekstrarár. Stjórnendur og starfsmenn félagsins hafa veitt starfsmönnum skattrannsóknarstjóra umbeðnar upplýsingar og gögn og munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að auðvelda þeim vinnu sína.
 
Fá fyrirtæki hafa verið meira á milli tannanna á fólki en FL Group, bæði á uppgangstímum fyrri ára sem og síðustu misserin þegar félagið hefur háð mikla varnarbaráttu. Að mati stjórnarinnar hefur stór hluti umræðu um málefni félagsins einkennst af sögusögnum og vanþekkingu. Rannsókn skattrannsóknarstjóra er því til þess fallin að eyða vafa um ákveðna þætti í rekstri félagsins sem sætt hafa gagnrýni.
 
Stjórn Stoða og stjórnendur lýsa yfir fullum vilja til samstarfs við starfsmenn skattrannsóknarstjóra og vonast til að málið gangi sem hraðast fyrir sig."
 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK