Verðbólgan nú 17,1%

Vísitala neysluverðs, sem Hagstofan hefur reiknað út  miðuð við verðlag í nóvember, hækkaði um 1,74% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis  hækkaði  um 1,84% frá október. Er þetta ívið minni hækkun en greiningardeildir banka höfðu spáð.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 17,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 19,5%. Þetta er mesta verðbólga sem mælst hefur frá því í maí 1990 þegar hún var 18,1%.

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 3,6% (vísitöluáhrif 0,46%), verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 6,5% (0,17%) og verð á fötum og skóm um 3,0% (0,14%). Verð á húsgögnum, heimilistækjum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 3,4% (0,24%), verð á sjónvörpum, dvd-spilurum, tölvum um 6,9% (0,11%) og efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 7% (0,29%).

Verð á nýjum bílum hækkaði um 1,1% (0,08%). Sala nýrra bíla hefur dregist verulega saman og þess vegna mælir Hagstofan nú eingöngu breytingu á verði þeirra bíla sem seldir eru í stað þess að miða við listaverð á öllum bílum.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 17,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 19,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% sem jafngildir 20,8% verðbólgu á ári (27,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK