Verðbólgan nú 11,9%

Vísitala neysluverðs í apríl hækkaði um 0,45% frá fyrra mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði hún um 0,84% frá mars.

Síðustu tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,6%. Mest varð 12 mánaða verðbólga 18,6% í janúar. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,4% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári en 9,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis.

Fram kemur í tilkynningu Hagstofunnar, að  verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 8,2% (vísitöluáhrif 0,33%) og verð á fötum og skóm um 3,2% (0,19%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 1,6% (-0,23%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,19% og -0,04% af lækkun raunvaxta. Verð á mat og drykkjarvöru lækkaði um 0,7% (-0,10%).

Vísitalan er nú birt á nýjum grunni og byggist hann á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2005-2007. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins. Má þar nefna nýskráningar á bifreiðum, umsvif flug- og pakkaferða auk gagna um veltu smásöluverslana. Búðarvogum í dagvöruverslun hefur verið breytt. Þá hefur tillit verið tekið til breytts innkaupamynsturs árið 2008 og eru áhrif þeirrar breytingar 0,12% til lækkunar á vísitölunni. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl. 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK