Kröfur upp á 316,6 milljarða króna í þrotabú Baugs

Höfuðstöðvar Baugs voru í þessu húsi áður en félagið fór …
Höfuðstöðvar Baugs voru í þessu húsi áður en félagið fór í þrot. mbl.is/Árni Sæberg

Alls bárust kröfur upp á 316,6 milljarða króna í þrotabú Baugs Group en frestur til að skila inn kröfum rann út miðvikudaginn 19. ágúst sl. Þar af eru veðkröfur upp á 123,9 milljarða króna, forgangskröfur (til að mynda laun starfsmanna) upp á 78 milljónir króna. Almennar kröfur eru upp á 170,2 milljarða króna, en þá er meðal annars átt við víxla, reikninga, skatta ofl. Eftirstæðar kröfur eru 22,5 milljarðar króna, en þá er til að mynda um að ræða vexti og annan kostnað sem falla til eftir upphaf skipta.

Í tilkynningu frá skiptastjórum þrotabús Baugs kemur fram að í ljósi umræðu síðustu daga um kröfur í þrotabúið þá hafi verið talið rétt að upplýsa um fjárhæðir krafna. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK