Vilja fleiri konur í framvarðasveit atvinnulífsins

Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir, stofnendur Auður Capital eru meðal …
Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir, stofnendur Auður Capital eru meðal kvenna í forystusveit atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs og hvetja því fyrirtæki til að nýta betur kraft kvenna.

Á vef SA kemur fram að nýleg íslensk rannsókn sýnir að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum og arðsemi eigin fjár er meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar. Fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru ennfremur líklegust til að lifa og blandaðar stjórnir karla og kvenna hafa reynst best.

„SA hafa skuldbundið sig til að leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að hlutfall kvenna í forystusveit íslensks atvinnulífs verði ekki undir 40% árið 2013. Síðastlið vor skrifuðu SA undir samstarfssamning við FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands um að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs. Fulltrúar stjórnmálaflokka á Alþingi styðja samninginn en CreditInfo mun mæla árangur verkefnisins árlega," að því er segir á vef SA.

Hér er hægt að sjá upplýsingar um konur í atvinnulífinu

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK