Fleiri bankamenn afþakka kaupauka

LloydsTSB
LloydsTSB Reuters

Forstjóri breska bankans Lloyds Banking Group, Eric Daniels, mun ekki þiggja kaupauka upp á 2,3 milljónir punda, 457 milljónir íslenskra króna fyrir síðasta rekstrarár. Breska ríkið kom bankanum til aðstoðar með því að dæla milljörðum punda inn í rekstur hans svo að bankinn færi ekki í þrot á síðasta ári.Breska ríkið á 43% hlut í Lloyds bankasamsteypunni.

Til stóð að greiða forstjóranum út kaupauka og var það samþykkt af stjórn bankans. Hann hafnaði hins vegar boðinu annað árið í röð. Segir í tilkynningu frá bankanum að Daniels telji ekki rétt að hætta þeim góða árangri sem er að nást í rekstri bankans með því að veita yfirmönnum kaupauka.  Ekki sé viðeigandi að þiggja slíka kaupauka í bankageiranum í dag.

Í síðustu viku var greint frá því að helstu yfirmenn breska bankans Barclays myndu ekki þiggja kaupauka í ár. Hið sama verður væntanlega uppi á teningnum hjá Royal Bank of Scotland. Samkvæmt frétt Financial Times í dag þá á forstjóri RBS, Stephen Hester, rétt á 1,6 milljón punda í kaupauka en að hann muni ekki þiggja greiðsluna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK