Viðræður um sölu á banka í Makedóníu

Merki Milestone
Merki Milestone

Viðræður eru hafnar um kaup búlgarska bankans Central Cooperative á hlut Milestone í Stater Banka í Makedóníu en Milestone á 91,71% hlut í  bankanum. Central Cooperative er dótturfélag stærsta eignarhaldsfélags Búlgaríu, Chimimport. Á bankinn fyrir tvo banka í Makedóníu, Sileks Banka og Post Bank.

Hluturinn í bankanum er meðal eigna í þrotabúi Milestone, fjárfestingafélagi sem var í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssonar.  Hafa ýmsar eignir komið fram í þrotabúinu, svo sem gokart-bílar, vínekra í Makedóníu ofl.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK