Eigið fé Auðar Capital 1,1 milljarður króna

Stofnendur Auðar Capital: Kristín Pétursdóttir og halla Tómasdóttir
Stofnendur Auðar Capital: Kristín Pétursdóttir og halla Tómasdóttir

Tap Auðar Capital nam 88 milljónum króna á árinu 2009 en árið á undan hagnaðist félagið um 55 milljónir króna. Eigið fé fyrirtækisins er 1,1 milljarður króna og það er skuldlaust.

Á árinu hóf Auður vörslu séreignarsparnaðar og starfsemi fyrirtækjaráðgjafar var efld til muna.  Starfsmannafjöldi tvöfaldaðist á árinu 2009, starfsmenn voru 16 í byrjun árs en 32 við árslok, að því er segir í tilkynningu.

„Við ákváðum að fjárfesta í framtíðinni því við vitum að öll él styttir upp um síðir“, segir Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital í fréttatilkynningu. 

„Við erum sannfærð um að fjármálafyrirtæki byggt á heilbrigðri hugmyndafræði eigi mikil tækifæri á markaði þar sem traust og trúverðugleiki skiptir sköpum.  Mikil fjölgun viðskiptavina í séreignarsparnaði og eignastýringu undirstrikar að eftirspurn eftir okkar nálgun er mikil.  Verkefnastaða fyrirtækjaráðgjafar er mjög góð og þó að fjárfestingar hafi gengið hægar en við hefðum óskað þá bindum við vonir við að það sé að losna um fjárfestingarkosti í kjölfar endurskipulagningar bankanna.“

Á aðalfundi í vikunni var stjórn félagsins kjörin.  Stjórnina skipa: Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Kristín Edwald og David Adams. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK