11 milljarða afgangur

Hlutur sjávarafurða í útflutningi er um 42% um þessar mundir.
Hlutur sjávarafurða í útflutningi er um 42% um þessar mundir.

Flutt var út í mars fyrir 52,8 milljarða króna og inn fyrir 41,4 milljarða  króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 11,4 milljarða króna. Afgangur hefur nú verið á vöruskiptum alla mánuði frá september 2008. 

Í mars á síðasta ári voru vöruskiptin hagstæð um 15,7  milljarða króna á þáverandi gengi.  Fyrstu þrjá mánuði þessa árs var 22 milljarða króna afgangur af vöruskiptum við útlönd en fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 nam afgangurinn 30 milljörðum króna.

Árið 2009 voru fluttar út vörur fyrir 500,9 milljarða króna en inn fyrir 410,6 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptum, reiknað á fob verðmæti, sem nam 90,3 milljörðum króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK