Fréttaskýring: Ætlun Kaupþings var að hafa áhrif á markaðinn

Ekki er enn ljóst nákvæmlega hver ástæðan var fyrir handtöku þeirra Hreiðars Más Sigurðssonar og Magnúsar Guðmundssonar, fyrir utan að rannsóknin snúi m.a. að meintu skjalafalsi, auðgunarbrotum og markaðsmisnotkun. Hreiðar Már var forstjóri Kaupþings og Magnús var forstjóri Kaupþings í Lúxemborg.

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er ítarlega fjallað um þátt Kaupþings í viðskiptum með eigin hlutabréf og einnig um skuldabréfaviðskipti sem áttu að hafa áhrif á skuldatryggingaálag bankans.

Skuldatryggingaálag á bréf Kaupþings hafði hækkað stöðugt árið 2008 og töldu stjórnendur bankans að hækkunin væri óeðlileg og byggðist á litlum sem engum viðskiptum, heldur aðeins tilboðum á markaði.

Tvö félög, Chesterfield United og Partridge Management Group, fengu að kaupa lánshæfistengd skuldabréf, útgefin af Deutsche Bank, fyrir 125 milljónir evra hvort. Í upphafi átti þriðja félagið, Brooks Trading, að taka þátt í þessum viðskiptum, en ekki verður séð að af því hafi orðið. Var ætlunin að lækka skuldatryggingaálag Kaupþings.

Milljarðalán veitt

Eigendur Chesterfield voru þau Kevin Stanford, Karen Millen, Tony Yerolemou og Skúli Þorvaldsson. Eigandi Partridge var Ólafur Ólafsson og eigandi Brooks var Sheik Mohamed Al-Thani. Í upphafi lánaði Kaupþing í Lúxemborg eigendum hvors félags 130 milljónir evra, en fimm milljónir af því fóru til Deutsche Bank til greiðslu þóknunar. Sá banki lánaði svo hvoru félagi 125 milljónir evra. Lánin eru veitt í ágúst 2008 og flutt í íslenska bankann í september. Hinn 2. október 2008 veitir Kaupþing Chesterfield og Partridge hvoru um sig 125 milljóna evra lán til viðbótar til að mæta veðköllum frá Deutsche Bank, sem slapp því frá lánasamningnum án taps.

Á stuttu tímabili lánaði Kaupþing því alls 510 milljónir evra í þessi skuldatryggingaviðskipti og fóru þær allar beint til Deutsche Bank. Eigendur félaganna komu ekki með neitt eigið fé, heldur voru viðskiptin öll fjármögnuð af Kaupþingi.

Hreiðar Már sagði við skýrslutöku hjá rannsóknarnefndinni að þessi viðskipti hefðu haft áhrif á skuldatryggingaálagið, sem hann segir að hafi lækkað um 2-3 prósent.

Hafði áhrif á verð

Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar er ítarlega farið yfir viðskipti Kaupþings með eigin bréf, sem og lán bankans til annarra aðila til kaupa á bréfum í Kaupþingi. Þekkt dæmi um slíkt eru kaup Q Iceland Finance á stórum hlut í bankanum, sem fjármögnuð voru að öllu leyti af Kaupþingi.

Þegar sú deild Kaupþings sem sá um eigin viðskipti er skoðuð sést að mikið ójafnvægi er á milli kaup- og sölutilboða deildarinnar í tilboðabók kauphallarinnar. Styður það þá kenningu að markmið viðskiptanna hafi verið að hafa áhrif á verð hlutabréfa bankans.

Þá vekur athygli hve oft Kaupþing í Lúxemborg er skráður kaupandi á bréfum móðurfélagsins. Má gera ráð fyrir því að hlutirnir hafi verið keyptir fyrir hönd einhverra viðskiptavina bankans. Þegar skýrslan var birt hafði nefndin ekki fengið nánari upplýsingar um ákveðin viðskipti fyrir eigin reikning Kaupþings í Lúxemborg. Alls keypti dótturfélagið 3,27 prósenta hlut í Kaupþingi. Var því um að ræða verulega hlutdeild í bankanum þar sem raunverulegt eignarhald var ekki þekkt.

Holt Investment, félag í eigu Skúla Þorvaldssonar, var viðskiptavinur í eignastýringu í Lúxemborg og var eitt þeirra sem fengu lán til að kaupa bréf í bankanum. Alls fékk Holt lánaða 18,2 milljarða króna til kaupa á bréfum og námu keypt bréf umfram seld 15,6 milljörðum. Athygli vekur hins vegar að í september keypti Holt, aftur með láni frá Kaupþingi, bréf af bankanum sjálfum fyrir 2,6 milljarða króna. Ellefu dögum síðar keypti bankinn þessi bréf aftur og þá á hærra verði. Hagnaður Holts af viðskiptunum var um 90 milljónir króna.

Leystur frá störfum

Magnús Guðmundsson hefur verið leystur frá störfum sem bankastjóri Havilland-banka í Lúxemborg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Í tilkynningu Havilland-bankans kemur fram að Jonathan Rowland taki við starfi forstjóra bankans.

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur ekki svarað kalli sérstaks saksóknara um að flýta komu sinni til landsins vegna fyrirhugaðrar yfirheyrslu, samkvæmt frétt Stöðvar 2.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK