Hagnaður hjá OR á fyrri hluta ársins

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur skilaði 5,1 milljarðs króna hagnaði á fyrri hluta ársins en á sama tímabili í fyrra var 10,6 milljarða króna tap. Á öðrum ársfjórðungi þessa árs var 2,1 milljarðs króna tap á rekstrinum.  

Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunni, að  gengi íslensku krónunnar hafi styrkst um 8,3% á fyrri helmingi ársins og um önnur 2,5% síðan. Greiddir vextir fyrri hluta árs námu 1,1 milljarði króna. Samsvarandi fjárhæð 2009 var 3,3 milljarðar króna. Vaxtakostnaður lækkar
því á milli tímabila um tvo þriðju, eða 2,2 milljarða. Segir fyrirtækið að ástæðan sé, sú að á árinu 2009 þurfti OR að leita á íslenskan lánamarkað, þar sem vextir eru meira en tífaldir meðalvextir erlendra lána OR, sem eru 0,99%. 

Rekstrartekjur á fyrri hluta ársins námu 13.561 milljón króna en voru 11.925 milljónir króna sama tímabil árið áður. 

Fram kemur í tilkynningunni, að áfram sé unnið að stækkun  Hellisheiðarvirkjunar. Áformað sé að taka 4. áfanga hennar, framleiðslu á heitu vatni, í notkun undir lok yfirstandandi árs og 5. áfanga virkjunarinnar, framleiðslu á 90 MW rafafls, síðla árs 2011.

Samið hefur verið við Evrópska fjárfestingabankann um fjármögnun helmings 5. áfanga Hellisheiðarvirkjunar. Viðræður um frekari fjármögnun fyrirtækisins stand yfir. 

Tilkynning Orkuveitu Reykjavíkur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK