15,4% ungs fólks án atvinnu

Á fjórða ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 13.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,4% vinnuaflsins, samkvæmt mælingum Hagstofunnar.  Atvinnuleysi mældist 8,4% hjá körlum og 6,3% hjá konum. Frá fjórða ársfjórðungi 2009 til fjórða ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 1200 manns.

Atvinnuleysið var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 15,4%. Hjá hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi 6,6% og 3,8% hjá 55–74 ára. Á fjórða ársfjórðungi 2010 var atvinnuleysi 8,2% á höfuðborgarsvæðinu en 5,9% utan þess.

Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2010 höfðu 800 fengið vinnu sem átti að hefjast síðar, eða 5,8%. Til samanburðar höfðu 300 manns fengið vinnu, eða 2,2%, á fjórða ársfjórðungi 2009. Á fjórða ársfjórðungi 2010 höfðu um 3200 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur, eða 24,2% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2009 um 1700 manns, eða 14%.

179 þúsund á vinnumarkaði

Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2010 var 165.600 manns og fækkaði um 900 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.800 manns sem jafngildir 79,9% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,5% og kvenna 76,2%.

Á fjórða ársfjórðungi 2009 voru alls 178.500 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá 80,3%. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 77,3%.

Vinnutími styttist

Á fjórða ársfjórðungi 2010 var meðalfjöldi vinnustunda 38,3 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 42,6 klst. hjá körlum en 33,7 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,3 klst. en 22,8 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fjórða ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst., 42,9 klst. hjá körlum og 34,5 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 44,6 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23 klst.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK