Ríkið verði að hlaupa undir bagga

4-600 milljarðar eru tryggðir samkvæmt frumvarpi um innstæðutryggingar.
4-600 milljarðar eru tryggðir samkvæmt frumvarpi um innstæðutryggingar. mbl.is/hag

Óraunhæft er að stefna að því að byggja upp innstæðutryggingasjóð, sem getur mætt stóru kerfisáfalli á íslenskum fjármálamarkaði.

Kemur þetta fram í minnisblaði efnahags- og viðskiptaráðuneytis vegna frumvarps um ný lög um innstæðutryggingar, en um mál þetta er fjallað í Morgunblaðinu í dag.

Segir í minnisblaðinu að heildarinnstæður í íslenskum bönkum séu um 1.500 milljarðar króna og þar af séu um 400-600 milljarðar tryggðir, samkvæmt frumvarpinu. Til að mæta algeru hruni á íslenska bankakerfinu þyrfti sjóðurinn því að vera í kringum 500 milljarða króna stór, en slík stærð væri afar kostnaðarsöm.

Af lestri minnisblaðsins má draga þá ályktun að ráðuneytið telji að innstæðutryggingasjóður geti í raun ekki tryggt innstæðueigendur fyrir falli eins af stóru bönkunum þremur án þess að ríkið hlaupi undir bagga með honum. Í frumvarpinu segir hins vegar að ríkið beri enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK