Kærum í Tchenguiz málum vísað frá

Hæstiréttur Íslands hefur með dómi þann 18. mars sl., vísað frá tveimur kærum Rawlinson & Hunter Trustees S.A. í málum sem varða kröfur gegn Kaupþingi banka hf. Þetta segir í tilkynningu frá slitastjórn bankans.

Fram kemur að Rawlinson & Hunter stýri sjóðunum Tchenguiz Discretionary Trust og Tchenguiz Family Trust en sjóðirnir tengist bræðrunum Robert og Vincent Tchenguiz.

„Kröfur Rawlinson & Hunter gegn Kaupþingi eru til meðferðar í tveimur dómsmálum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Rawlinson & Hunter kærði úrskurði héraðsdóms frá 10. febrúar síðastliðnum þar sem kröfu Rawlinson & Hunter um frestun málanna gegn Kaupþingi var hafnað. Krafan um frestun byggði á því að mál um sömu kröfur væri til meðferðar fyrir dómi í Englandi. Málaferlin í Englandi hófust hins vegar í júlí 2010 en þá höfðu Rawlinson & Hunter þegar lýst kröfum gegn Kaupþingi í desember 2009. Kröfunum var hafnað af slitastjórn í mars 2010.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að „stoð fyrir kæruheimild [yrði] með engu móti fundin í e. lið 1. mgr. 143. laga nr. 91/1991 [um meðferð einkamála]“ sem Rawlinson & Hunter byggði kæru sína á. Þá dæmdi Hæstiréttur Rawlinson & Hunter einnig til greiðslu kærumálskostnaðar, með orðunum að „við ákvörðun hans er tekið tillit til þess að kæra þessi er gersamlega að ófyrirsynju“.

Áhrif dóms Hæstaréttar eru þau að dómsmál um kröfur Rawlinson & Hunter á hendur Kaupþingi heldur áfram í efnismeðferð fyrir héraðsdómi, án tillits til málaferla í Englandi um sömu kröfur,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK