Íhuga að breyta sáttmála ESB

Herman Van Rompuy, forseti Evrópusambandsins
Herman Van Rompuy, forseti Evrópusambandsins THIERRY ROGE

Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu í dag að gerðar yrðu breytingar á stjórnarsáttmála sambandsins ef sýnt væri fram á nauðsyn þess til að ná samræmi og aga í efnahagsmálum en leiðtogar aðildarríkjanna 27 sátu á fundi í dag með það að markmiði að vinna bug á fjárhagsvanda evruríkjanna.

Herman Van Rompuy, forseti ESB, segir að afloknum fundi leiðtoganna, að ákveðið hafi verið að kanna möguleikann á breytingum á Lissabon-sáttmálanum ef það gæti orðið evrunni til bjargar. Mestu máli skipti að ná efnahagslegu samræmi.

Ógn við framtíð ESB

Ekki voru allir jafn hrifnir af þeim hugmyndum að breyta ESB-sáttmálanum en Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar, sagði að með því opna aftur fyrir endurskoðun á Lissabon-sáttmálanum, sem tók tíu ár að komast að samkomulagi um, væri verið að opna box Pandóru, sem gæti ógnað framtíð ESB.

Í gær lagði Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, til að sáttmálanum yrði breytt þannig að þau aðildarlönd sem lifðu um efni fram yrðu dregin fyrir Evrópudómstólinn. Hlaut tillagan litlar undirtektir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK