Hækkum vexti vegna verðbólgu

Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. mbl.is/Kristinn

„Við erum að hækka vexti vegna verðbólgunnar, ekki efnahagsbatans, það er ekki tímabært," sagði Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, á blaðamannafundi í dag þar sem fjallað er um vaxtaákvörðun bankans í morgun.

Már sagði að peningastefnunefndin teldi, að nafnvaxtastigið sé væntanlega á réttum stað og gæti verið það áfram næstu mánuði. En ef horft væri lengra fram á veginn væri ljóst, að ekki yrði hægt að vera með neikvæða raunvexti þegar hagvöxtur nær sér vel á strik.

Már sagði, að raunvextir væru nú neikvæðir og enn væri peningastefnan því að styðja við efnahagsbatann. Engar líkur væru á því, að vaxtahækkun bankans í morgun, um 0,25%, setti efnahagsbatann út af sporinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK