Verðbólgan 5,2%

Verð dagvöru lækkaði um 0,6% í nóvember
Verð dagvöru lækkaði um 0,6% í nóvember mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Engar breytingar urðu á vísitölu neysluverðs í nóvember en síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Í október mældist verðbólga 5,3%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,16% frá október.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,0% (vísitöluáhrif 0,12%). Þar af voru 0,15% áhrif af hækkun markaðsverðs en -0,03% af lækkun raunvaxta. Verð dagvöru lækkaði um 0,6% (-0,10%), segir í frétt frá Hagstofu Íslands.

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 3,9% verðbólgu á ári (3,6% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2011, sem er 384,6 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.594 stig fyrir janúar 2012.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK