Landsvirkjun tekur 10,5 milljarða lán

Landsvirkjun skrifaði í dag undir sambankalán í íslenskum krónum til þriggja ára að fjárhæð 10,5 milljarðar króna.

Lánið er veltilán og getur fyrirtækið dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum.
Lánið er með framlengingarheimild til tveggja ára og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár.

Um lántökuna sáu Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn.

Sambankalánið er viðbót við annað sambankalán að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala sem tilkynnt var hinn 27. desember síðastliðinn. Á vef Landsvirkjunar segir, að markmiðið sé að fyrirtækið hafi ávallt tryggan aðgang að fyrirvaralausri fjármögnun ef hefðbundnar fjármögnunarleiðir lokast tímabundið.

Með lántökunum hefur Landsvirkjun samtals tryggt sér fjármögnun að jafnvirði um 35 milljarða króna til allt að fimm ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK