Eiga 159,4 milljarða

Heildareignir tryggingafélaganna námu 159,4 milljörðum króna í lok febrúar og lækkuðu um 3,2 milljarða króna á milli mánaða.

Útlán og markaðsverðbréf námu 104 milljörðum króna og lækkuðu um 2,2 milljarða. Verðtryggð markaðsskuldabréf hækkuðu um 1,8 ma.kr. en útlán lækkuðu um 2,2 ma.kr. og hlutdeildarskírteini um 1,3 ma.kr. í febrúar.

Skuldir tryggingafélaganna námu 92 milljörðum króna og lækkuðu um 3,8 milljarða. Eigið fé tryggingarfélaga nam 67 milljörðum í lok febrúar, samkvæmt hagtölum Seðlabanka Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK