Svíar, Norðmenn og Danir hafa samþykkt að leggja alls 26 milljarða Bandaríkjadala í nýjan neyðarsjóð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem stofnaður var vegna efnahagskreppunnar. Alls hafa safnast 286 milljarðar dala í sjóðinn, að sögn forstjóra AGS, Christine Lagarde.
Hún hvetur aðildarríki AGS til þess að leggja meira af mörkunum svo það takist að ná markmiði sjóðsins um að safna 400 milljörðum Bandaríkjadala í hann.