Spá 0,5% hækkun neysluverðs

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,5% í apríl. Ef spá þeirra gengur eftir mun 12 mánaða verðbólga minnka úr 6,4% í 6,1%, og raunar gerir hún ráð fyrir áframhaldandi hægri hjöðnun verðbólgu næstu misseri eftir verðbólguskot sem staðið hefur linnulítið frá upphafi árs 2011. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs næst kl.9 þann 27. apríl næstkomandi.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

Greining Íslandsbanka telur að ferða- og flutningskostnaður aukist talsvert í aprílmánuði líkt og undanfarna mánuði, ekki síst vegna áframhaldandi hækkunar á eldsneyti. Auk þess koma árstíðabundnar hækkanir gjarnan fram í reiðhjólum, sumarhjólbörðum og fleiri ferðatengdum liðum í mánuðinum.

Gerir Greiningin ráð fyrir að liðurinn vegi til 0,15% hækkunar VNV í apríl. Þá hefur matvara hækkað nokkuð upp á síðkastið og gerum við ráð fyrir 0,1% hækkun VNV í apríl vegna þessa. Föt og skór leggja svo til tæp 0,1% í hækkun VNV að mati Greiningarinnar.

Loks koma almenn áhrif veikingar krónu á síðustu mánuðum og launahækkana í febrúar og mars fram í hækkun ýmissa liða sem samanlagt vega til ríflega 0,15% hækkunar VNV í spá okkar. „Hins vegar teljum við að húsnæðisliður vísitölunnar muni lítið hækka í apríl, enda vísbendingar um að húsnæðisverð hafi staðið í stað undanfarið,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

Hæg hækkun á seinni hluta ársins

Á seinni hluta ársins spáir Greining Íslandsbanka töluvert hægari hækkun VNV. Það er þó háð því að krónan gefi ekki frekar eftir. Spá þeirra gerir raunar ráð fyrir lítilsháttar styrkingu krónu þegar líður á árið, en óhagstæðari þróun krónunnar á komandi misserum myndi vitaskuld breyta verðbólguhorfum umtalsvert til verri vegar.

Haldi krónan sjó munu áhrif af mikilli hækkun launa undanfarna 12 mánuði hjaðna jafnt og þétt, innflutt verðbólga verður væntanlega lítil þar sem hrávöru- og orkuverð virðist hafa náð hámarki í bili og slakinn í hagkerfinu ætti að vera nægur til að koma í veg fyrir eftirspurnardrifna verðbólgu næsta kastið. „Við spáum því að verðbólga mælist 4,5% í lok yfirstandandi árs og að í desember 2013 verði verðbólgan 3,6%. 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans næst þó vart fyrr en á seinni hluta ársins 2014, en varla ætti að þurfa að nefna að mjög mikil óvissa er um verðbólgu svo langt fram í tímann,“ segir í Morgunkorninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK