Hagvöxtur drifinn áfram af einkaneyslu

Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var neikvætt á fyrsta ársfjórðungi þessa …
Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var neikvætt á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samtök atvinnulífsins segja að þó að það séu ánægjuleg tíðindi að hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi hafi verið 4,5% þá sé það áhyggjuefni að hann sé fyrst og fremst drifinn áfram af einkaneyslu. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar hafi verið neikvætt á ársfjórðungnum.

Hagstofan birti í morgun tölur um hagvöxt á fyrsta ársfjórðungi, en hún var 4,5%. Tölurnar benda til að fjárfestingar í heild hafi aukist um rúm 9% á þessu 12 mánaða tímabili og fjárfestingar atvinnuveganna um 13%. Fjárfestingar í heild námu 12,5% af VLF og fjárfestingar atvinnuveganna 8,7% og hækkuðu bæði hlutföllin um tæpt 1%.

„Að baki hagvextinum stendur hins vegar aukin einkaneysla að mestu leyti. Einkaneyslan jókst um 4,2% sl. 12 mánuði og skýrir, ásamt 1% aukningu samneyslu, tæpa tvo þriðju hluta hagvaxtarins á þessu tímabili. Auknar fjárfestingarnar standa að baki rúmum fjórðungi hagvaxtarins.

Áhyggjuefnin snúa sem fyrr að utanríkisviðskiptunum. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var neikvætt á ársfjórðungnum og hefur verið óverulegt á undanförnum misserum.  Með öðrum orðum hefur raunaukning  útflutnings og innflutnings haldist í hendur á sl. 12 mánuðum. Þegar við bætist neikvæð þróun viðskiptakjara þá fer vöruskiptaafgangur minnkandi en hann nam 23 ma.kr. (8,7% af VLF) á 1. ársfjórðungi 2012 samanborið við 26 ma. kr. (10,2%) fyrir ári síðan. Tölur um þjónustujöfnuð valda vonbrigðum í ljósi mikillar aukningar ferðamanna en þjónustuútflutningur jókst töluvert minna  en þjónustuinnflutningur,“ segir í frétt frá SA.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK