Heildarveltan 3.459 milljónir króna

mbl.is/Árni Torfason

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 1. júní til og með 7. júní 2012 var 126. Þar af voru 92 samningar um eignir í fjölbýli, 30 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.459 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,4 milljónir króna. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 230 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23 milljónir króna.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 216 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 89 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,9 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK