Tekjurnar neikvæðar um 8,1 milljarð

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.897 milljörðum króna í lok 1. ársfjórðungs …
Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.897 milljörðum króna í lok 1. ársfjórðungs 2012 eða sem svarar 105,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. mbl.is/Golli

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 8,1 milljarð króna á 1. ársfjórðungi sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2011 er hún var neikvæð um 11,8 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 1,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 4,6% af tekjum hins opinbera og hefur tekjuafkoman ekki verið hagstæðari síðan á öðrum ársfjórðungi 2008 á þennan mælikvarða.

Heildartekjur hins opinbera hækkuðu um rúm 11% milli 1. ársfjórðungs 2011 og 2012 eða úr 160,8 milljörðum króna í 178,7 milljarða króna. Tekjuhækkunin skýrist fyrst og fremst af átta milljarða króna aukningu í tekjusköttum, fjögurra milljarða aukningu í vöru- og þjónustusköttum og tveggja milljarða króna aukningu í rekstrartekjum.

Heildarútgjöld hins opinbera hækkuðu hins vegar um 8,2% á sama tíma eða úr 172,6 milljörðum króna 2011 í 186,7 milljarða króna 2012. Sú útgjaldahækkun skýrist aðallega af rúmlega fimm milljarða króna hækkun í launakostnaði, 3,3 milljarða króna hækkun í kaupum á vöru og þjónustu, þriggja milljarða hækkun á vaxtakostnaði og 2,2 milljarða króna hækkun í félagslegum tilfærslum til heimila. Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofunnar.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.897 milljörðum króna í lok 1. ársfjórðungs 2012 eða sem svarar 105,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Að teknu tilliti til peningalegra eigna var hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, neikvæð um 750 milljarða króna í lok ársfjórðungsins eða sem svarar 41,7% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 39,6% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi 2011 og 33,6% á sama ársfjórðungi 2010. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs hefur því versnað um 104 milljarða króna milli 1. ársfjórðungs 2011 og 2012.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK