Ferðamönnum heldur áfram að fjölga

Ferðamönnum fjölgaði um 12% í júlí
Ferðamönnum fjölgaði um 12% í júlí Mbl.is/Sigurgeir

Gistinóttum fjölgaði um rúmlega 12% í júlí miðað við sama tíma í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru 90% og fjölgaði um 13%, en gistinóttum íslendinga fjölgaði um 8%. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands í dag.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum. Á höfuðborgarsvæðinu voru 154.100 gistinætur eða um 14% fleiri en í júlí 2011. Á Suðurlandi voru 37.900 gistinætur á hótelum í júlí sem er rúmlega 10% aukning samanborið við fyrra ár. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 10%, voru 28.300 samanborið við 25.800 í júlí 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum einnig um 10% en þar var fjöldi gistinátta 11.700. Gistinætur á Austurlandi voru 12.700 og fjölgaði um rúm 7%. Gistinætur á Suðurnesjum voru 10.200 eða um 6% fleiri en í júlí 2011.

Á fyrstu 7 mánuðum ársins hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 20% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11%. Bendir Hagstofan á að í þessum tölum sé einungis að finna upplýsingar um hótel og gististaði sem eru opin allt árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK