Þurfa 59,3 milljarða evra fjárhagsaðstoð

Verst er staða bankans Bankia á Spáni.
Verst er staða bankans Bankia á Spáni. mbl.is/reuters

Spænskir bankar þurfa á 59,3 milljarða evra fjárhagsaðstoð að halda til að koma rekstrinum í eðlilegt horf, samkvæmt niðurstöðum óháðrar úttektar á stöðu bankanna, sem seðlabanki Spánar birti í dag. 

Álagsmælingar sem gerðar voru á 14 bankahópum leiddu í ljós, að mest væri þörfin fyrir aukið fé hjá Bankia-bankanum, eða 24,7 milljarðar evra. Þeim banka hefur einu sinni verið bjargað frá þroti frá því bankakreppan skall á árið 2008.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK