Höfnin óþægur ljár í þúfu

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2013 gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur fyrir afskriftir og fjármagnsliði verði um 635,9 milljónir króna fyrir bæjarsjóð (A-hluta) og 2.774,1 milljón fyrir samstæðu. (A+B hluta). Rekstrarafgangur bæjarsjóðs (A-hluta), að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða, verður um 50,9 milljónir króna.

Stærstu fyrirtæki og stofnanir sem falla undir B-hluta eru: Reykjaneshöfn, Fasteignir Reykjanesbæjar ehf., og HS Veitur hf.

Þrátt fyrir rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði er áfram gert ráð fyrir að mikill fjármagnskostnaður falli á Reykjaneshöfn og félagslegar fasteignir bæjarins og er því áætlað að halli samstæðu, að teknu tilliti til fjármagnsliða verði um 351,8 milljónir króna.

Eiginfjárhlutfall bæjarins hækkar á milli ára

Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs hækkar og verður 33,41% og fyrir samstæðu 23,99%. Veltufjárhlutfall er 1,14 fyrir bæjarsjóð og 1,70 fyrir samstæðu.

Veltufé frá rekstri er áætlað um 1.025,5 milljónir króna fyrir bæjarsjóð og um 2.303,8 milljónir króna fyrir samstæðu. Handbært fé frá rekstri fyrir bæjarsjóð er áætlað 978,8 milljónir króna og fyrir samstæðu 2.330,3 milljónir króna.

Handbært fé bæjarsjóðs í árslok er áætlað 1.022,2 m.kr. og fyrir samstæðu 2.281,3 m.kr. Eignir á íbúa eru áætlaðar 2.102 þús.kr. fyrir bæjarsjóð og 3.291 þús.kr. fyrir samstæðu. Skuldir á íbúa eru áætlaðar 1.400 þús.kr. fyrir bæjarsjóð og 2.501 þús.kr. fyrir samstæðu.

Útsvarið áfram í hámarki

Útsvarsprósenta verður áfram 14,48%. Álagningarprósentur fasteignagjalda verða áfram óbreyttar.

Sá fyrirvari er gerður í fjárhagsáætlun að enn er ófrágengið uppgjör við Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. (EFF), sem er í eigu 10 sveitarfélaga og fjármálastofnana. Áhrif væntanlegra breytinga á efnahagsreikning eru tekin inn í fjárhagsáætlun. Ráðgert er að sveitarfélögin ljúki samningum við EFF og bankastofnanir fyrir áramót.

„Fræðslu- og uppeldismál eru sem fyrr langstærsti málaflokkurinn en útgjöld til fræðslumála nema 51% af heildarútgjöldum til allra málaflokka. Fjölskyldu- og félagsþjónusta er með 14%, íþrótta- og tómstundamál nema 9%, umhverfis-, umferðar- og skipulagsmál eru með 7%, menningarsvið er með 4% af heildarútgjöldum og brunamál og almannavarnir taka til sín 2%.

Sameiginlegur kostnaður nemur 9% af heildarútgjöldum en undir þennan málaflokk falla nefndir og ráð, rekstur bæjarskrifstofa, tölvu- og upplýsingamál fyrir allar stofnanir og aukaframlag í lífeyrissjóð. Inni í þessum málaflokki er einnig utanumhald um framlög til Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum,“ segir í tilkynningu til kauphallarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK