„Þurfum stöðugt að vera á tánum“

Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Alcoa á Íslandi.
Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Alcoa á Íslandi.

„Við þurfum stöðugt að vera á tánum til þess að verja okkar starfsskilyrði“ sagði Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, á fundi Samtaka atvinnulífsins í Hörpunni í morgun, en hann segir að nýlegar áætlanir stjórnvalda um að framlengja tímabundinn orkuskatt séu án samráðs við stóriðjuna. Hann telur óstöðugt skattaumhverfi og nýja skatta á orkufrekan iðnað fæla burt frekari fjárfestingu í iðnaðinum, ýta nýfjárfestingu erlendra aðila frá og leiða til þess að kaupendur myndu vilja lægra raforkuverð vegna síhækkandi skatta.

Einhliða ákvarðanir og óstöðugt umhverfi

Á fundinum nefndi Magnús að sú þróun sem hefði orðið á raforkuskattinum væri gott dæmi um það óstöðuga skattumhverfi sem fyrirtæki byggju við hérlendis. Árið 2009 hafi stóriðjufyrirtækin samið við ríkið um þennan skatt, meðal annars vegna þess ástands sem uppi var í þjóðfélaginu, en þar hafi verið tekið sérstaklega fram að um tímabundin samning væri að ræða. Þetta hafi skilað ríkinu 3 milljörðum á ári í formi aukinna tekna og að stóriðjufyrirtækin hafi allan tímann staðið við sitt.

Nú þegar sá samningur er að renna út hafi stjórnvöld einhliða ákveðið að halda þessu áfram, þrátt fyrir fyrri loforð og skilning sem var uppi um málið. Magnús segir það mjög sérkennilegt að þessum fyrirtækjum „hafi ekki verið boðið að neinu samningsborði“, heldur  hafi ríkið tekið ákvörðunina um áframhaldandi raforkuskatt einhliða og að allar umræður um málið komi að frumkvæði stóriðjunnar.

1 milljarður á mánuði

Segir hann mun vænlegra að reyna að horfa til þess að stækka kökuna frekar en að skattleggja núverandi starfsemi úr hófi. Sagði hann meðal annars á fundinum að það liti út fyrir að rekstur álversins í Helguvík gæti skilað 1 milljarði í bættri afkomu ríkissjóðs, með beinum og óbeinum hætti, en að lítill áhugi virtist fyrir þeim framkvæmdum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK