Framlengja stimpilgjaldaafslátt

Niðurfelling stimpilgjalda vegna endurfjármögnunar fasteignaveðskuldabréfa og bílalána verður framlengt í …
Niðurfelling stimpilgjalda vegna endurfjármögnunar fasteignaveðskuldabréfa og bílalána verður framlengt í 1 ár. mbl.is/Ómar Óskarsson

Niðurfelling stimpilsgjalds vegna endurfjármögnunar fasteignaveðskuldabréfa og bílalána verður framlengd til loka árs 2013, að því er fram kemur í breytingum við fjárlagafrumvarpið, sem kynnt var á Alþingi í gær. 

Ákvæðið var fyrst sett á í október 2008, en var til bráðabirgða og átti að renna út í lok þessa árs. Þetta hefur meðal annars töluverða þýðingu fyrir þá sem huga að endurfjármögnun lána og að breyta úr verðtryggðum yfir í óverðtryggð, eða úr óverðtryggðum yfir í verðtryggð. 

Stimpilgjöld á fasteignaveðskuldabréf eru 1,5% og hefðu aðilar því þurft að greiða 300 þúsund krónur vegna 20 milljóna íbúðaláns ef ákveðið var að endurfjármagna það fyrir breytinguna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK