Hafa endurgreitt 9 milljarða á 4 árum

Bankarnir hafa greitt til baka 9 milljarða til viðskiptavina.
Bankarnir hafa greitt til baka 9 milljarða til viðskiptavina. mbl.is

Stóru bankarnir þrír hafa á síðustu 4 árum endurgreitt viðskiptavinum sínum rúmlega 9 milljarða í formi peningagreiðslna eða lækkunar á höfuðstóli lána. Þetta er fyrir utan höfuðstólslækkanir eða aðrar breytingar sem hafa verið gerðar vegna opinberra aðgerða eða sjálfstæðra ákvarðana hvers banka fyrir sig í þeim efnum.

Lækkuðu lán um 4,1 milljarð

Landsbankinn hefur greitt hæstu upphæðina, en á hún nemur um 4,5 milljörðum. Þar af var  um 4,1 milljarða endurgreiðsla í formi lækkunar á höfuðstóli lána um sumarið 2011. Þá endurgreiddi bankinn 20% af vöxtum lána, sem einstaklingar greiddu á tímabilinu frá árslokum 2008 til maímánaðar 2011. Hámarksgreiðsla á hvern og einn viðskiptavin var 1 milljón.

Um 350 milljónir komu til vegna 50% endurgreiðslu á vöxtum sem greiddir voru vegna desember gjalddaga árin 2009 og 2010. Sú upphæð var millifærð inn á reikning viðskiptavina. Í heild hafa um 54 þúsund viðskiptavinir notið góðs af þessum aðgerðum.

Endurgreiðsla og vaxtaafsláttur

Íslandsbanki hefur á þessu tímabili staðið fyrir eða tilkynnt um endurgreiðslu á um 2,8 milljörðum. Í dag gaf bankinn út að um 20 þúsund viðskiptavinir fengju endurgreidda 30% af þeim vöxtum sem  þeir  greiddu  af húsnæðislánum og öllum almennum skuldabréfalánum hjá bankanum á síðasta  ári. 

Heildarupphæð  endurgreiðslunnar er um 2,5 milljarðar króna en að meðaltali mun  hver viðskiptavinur fá endurgreiddar um 120.000 krónur. Endurgreiðslan getur að hámarki numið 500.000 krónum á hvern viðskiptavin.

Íslandsbanki hefur einnig staðið fyrir endurgreiðslu til vildarviðskiptavina síðustu 4 ár. Með þessu móti hefur bankinn borgað út um 330 milljónir í formi punkta, sem viðskiptavinir geta breytt í krónur og tekið út.

Til viðbótar þessu gaf bankinn þeim sem ákváðu að breyta verðtryggðum og gengistryggðum lánum yfir í óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum vaxtaafslátt. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka er heildarkostnaður vegna þess um 2 milljarðar. Þetta gekk þó ekki yfir þá sem ákváðu að halda áfram óbreyttum lánum.

2,5 milljarðar inn á reikning viðskiptavina

Hjá Arion banka var í fyrra veittur svokallaður þakklætisvottur, en bankinn gaf viðskiptavinum þá afslátt af greiðslum ársins á undan. Nam afslátturinn sem nemur tveimur gjalddögum á íbúðalánum og 30% afslætti af vaxtagreiðslum ársins af yfirdráttarlánum. Heildarupphæð endurgreiðslunnar var 2,5 milljarður, en um 33 þúsund viðskiptavinir fengu greitt frá bankanum inn á reikninga sína.

Ekki frekari aðgerðir hjá hinum bönkunum

Í kjölfar endurgreiðslunnar sem Íslandsbanki kynnti í dag spurðist mbl.is fyrir hjá hinum bönkunum hvort von væri á svipuðum aðgerðum. Fengust þau svör að um einskiptiaðgerðir hafi verið að ræða og að ekki væri gert ráð fyrir frekari endurgreiðslum eða afsláttur nú. 

Endurgreiðsla stóru bankanna þriggja síðustu árin.
Endurgreiðsla stóru bankanna þriggja síðustu árin. Mynd/mbl.is
Efnisorð: bankar vextir
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK