N1 selur Bílanaust

JIM Smart

Lárus Blöndal Sigurðsson og meðfjárfestar hafa skrifað undir samning um kaup á rekstri Bílanausts, kaupverð er trúnaðarmál. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Bílanaust rekur sjö verslanir. Stærsta verslunin er á Bíldshöfða 9 í Reykjavík en einnig eru verslanir í Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík, á Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum.

Jafnframt rekur fyrirtækið öfluga söludeild og fyrirtækjaþjónustu. Bílanaust starfar á sviði varahluta og bílatengdra vara og rekur stærstu bílavöruverslun landsins.

Fyrirtækið var stofnað af Matthíasi Helgasyni árið 1962.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK