Bréf í Blackberry lækkuðu um 28%

AFP

Hlutabréf í kanadíska snjallsímafyrirtækinu Blackberry hafa fallið í verði í dag eftir að fyrirtækið tilkynnti 84 milljóna dala tap (10,4 milljarða króna) á tímabilinu 1. mars-31. maí. 

Í fyrra var tapið enn meira eða 518 milljónir dala á sama tímabili. En árshlutauppgjörið nú er þó verra en spáð hafði verið. Við upphaf viðskipta í kauphöllinni í New York  morgun féllu hlutabréf í fyrirtækinu um 28%. Stjórnendur hafa sagt að einnig verði tap á næsta ársfjórðungi.

Í frétt frá fyrirtækinu kemur fram dreifing á símtækjum hafi aukist en ekki er sagt hversu mörg tæki voru seld á ársfjórðungnum. Blackberry setti tvo nýja síma  á markað nýverið. Z10 er með snertiskjá en Q10 er með liltu lyklaborði sem margir Blackberry notendur segjast kjósa.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK