Bandbreiddin margfölduð

Ómar Benediktsson, forstjóri Farice og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans.
Ómar Benediktsson, forstjóri Farice og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans.

„Samningurinn tryggir okkur bandbreidd um þrjá sæstrengi:  Í gegnum FARICE-1  og DANICE strengina til Evrópu en einnig um Greenland Connect, til Norður-Ameríku,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um nýjan samning sem gerður hefur verið við Farice.

Samningurinn kemur til með að tryggja netsamband Símans við umheiminn til ársloka 2019. Sævar segir Símann fá margfalda bandbreidd úr landi á við það sem nú er. „Síminn hefur átt í farsælu viðskiptasambandi við Farice um árabil og með þessum samningi styrkjum við enn frekar samband okkar við umheiminn. Markmið okkar er alveg skýrt, að viðskiptavinir Símans geti alltaf treyst því að þeir fái bestu mögulegu tengingar á samkeppnishæfu verði og að öryggi sé tryggt,“ segir Sævar.

Ómar Benediktsson, forstjóri Farice, segir Símann lengi hafa verið einn af helstu samstarfsaðilum Farice. „Það er ánægjulegt að Síminn metur gæði þjónustu Farice að verðleikum með gerð þessa samnings sem skapar  aukið svigrúm til hagsbóta fyrir viðskiptavini Símans.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK