Selja pítsur fyrir 1,3 milljarð á netinu

Sala á pizzum gegnum netsíðu og app Domino's veltir um …
Sala á pizzum gegnum netsíðu og app Domino's veltir um 1,3 milljarði á þessu ári. Búist er við töluverðri aukningu á næsta ári. Ásdís Ásgeirsdóttir

Dominos pizza hefur á síðustu tveimur árum endurskipulagt reksturinn og farið í sölu á netinu og í gegnum app fyrirtækisins. Þetta hefur skilað því að í ár er áætlað að um 450 þúsund pantanir fari í gegnum vefsíðuna og um 100 þúsund pantanir gegnum appið. Heildarveltan vegna þessa er um 1,3 milljarður. Þetta segir Magnús Hafliðason, markaðsstjóri fyrirtækisins, en hann hélt fyrirlestur um vörumerkjabreytingu fyrirtækisins í hátíðasal Háskóla Íslands í dag.

Fyrir tveimur árum ákváðu stjórnendur fyrirtækisins að fara í gegnum reksturinn og voru kynningarmál tekin í gegn. Magnús segir að vörumerkið hafi verið endurmarkað og þeir hafi gert breytingar á vörunni sem hafi staðið óbreytt í 18 ár þar á undan. Meðal annars hafi verið bætt við litina, en áður voru bara hvítur, rauður og blár notaðir í öllu kynningarefni fyrirtækisins.

Netfyrirtæki sem selur pítsur

Viðamesta breytingin var þó þegar sala hófst á netinu og útgáfa á appinu í fyrra. Magnús segir að báðar þessar þjónustur hafi strax fengið góðar viðtökur og í dag gerir hann ráð fyrir því að fyrirtækið sé með eitt söluhæsta appið á Íslandi. Hann segir að hægst hafi á skráningu nýrra notenda, en að notkunin hafi aftur á móti aukist mikið. Hann segir á milli átta til tíu þúsund pantanir koma gegnum appið í hverjum mánuði, en það skilar sölu upp á 300 til 400 milljónir á ári.

Magnús segir að salan á netinu og appinu sé í dag tæplega 40%, en hann áætlar að í lok næsta árs verði hlutfallið komið nálægt 60%. Með því verði Dominos orðið netfyrirtæki sem selur pítsur, en ekki pítsufyrirtæki sem selur gegnum netið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK