Jón Gunnar fær hvatningarverðlaun

Jón Gunnar Bernburg og Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, sem …
Jón Gunnar Bernburg og Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, sem afhenti verðlaunin. AP

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir 2013 voru afhent á Rannsóknaþingi Rannís fimmtudaginn 5. desember. Dr. Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, hlaut viðurkenninguna að þessu sinni. Ber að fagna því að þetta er í fyrsta sinn sem félagsvísindamaður fær þessi verðlaun. Tók Jón Gunnar við viðurkenningunni úr hendi mennta- og menningarmálaráðherra.

Jón Gunnar fæddist árið 1973. Hann lauk  BA prófi í félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og doktorsprófi í sömu grein frá State University of New York í Albany. Hann var handhafi rannsóknastöðustyrks Rannís árin 2003 til 2005, en hefur kennt við Háskóla Íslands frá árinu 2002. Jón Gunnar var ráðinn lektor við félagsvísindadeild HÍ árið 2005, dósent við sömu deild árið 2007 og loks prófessor við félags- og mannvísindadeild árið 2009.  

Í tilkynningu segir að Jón Gunnar sé þegar kominn í fremstu röð íslenskra félagsvísindamanna. Eftir hann liggur fjöldi greina í virtum tímaritum. Rannsóknir Jóns Gunnars eru auk þess unnar í virku alþjóðlegu samstarfi. Niðurstöður rannsókna hans og samstarfsfólks hafa birst í gæðatímaritum eins ogSociology,CriminologyogJournal of Research Crime and Delinquency. Hann hefur einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir rannsóknarsamfélagið bæði innan lands og utan. 

Sérsvið Jóns Gunnars eru félagsleg frávik, afbrotafræði, skipulagsheildir og aðferðafræði.  Hann hefur sýnt að hann er óragur við að glíma við ólík viðfangsefni á sviði félagsfræði. Hann hefur einkum unnið mikilvægt starf á þremur fræðasviðum í rannsóknum á íslensku samfélagi.  Í fyrsta lagi er hann einn af leiðandi fræðimönnum á sviði stimplunarkenninga í félagsfræði (labeling theory). Í öðru lagi hefur hann látið að sér kveða í kenningum um siðrof. Loks hefur hann verið í fararbroddi rannsókna á áhrifum og gerð nærsamfélagsins og áhrifum þess á velferð barna og unglinga hérlendis. Þessar rannsóknir eru taldar hafa bæði mikið fræðilegt og hagnýtt gildi.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK