Auður Capital og Virðing sameinast

Frá vinstri: Hannes Frímann Hrólfsson, Kristín Pétursdóttir og Friðjón Rúnar …
Frá vinstri: Hannes Frímann Hrólfsson, Kristín Pétursdóttir og Friðjón Rúnar Sigurðsson.

Hluthafafundir í Auði Capital hf. og Virðingu hf. veittu í dag, 8. janúar, samþykki sitt fyrir sameiningu félaganna, sem stjórnir þeirra hafa undirbúið frá því í ágúst síðastliðnum. Á sameiginlegum hlutahafafundi félaganna var ákveðið að sameinast undir nafninu Virðing hf. Markmiðið með samrunanum er bætt og aukin þjónusta við viðskiptavini og meiri hagkvæmni í rekstri.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Virðingu hf.

Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður Auðar Capital hf., var kjörin stjórnarformaður Virðingar hf. og Magnús Hreggviðsson varaformaður. Með þeim í stjórn félagsins eru Guðbjörg Edda Eggertsdóttir og Rúnar Bachmann. Hannes Frímann Hrólfsson, núverandi forstjóri Auðar Capital, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þess. Friðjón Rúnar Sigurðsson, núverandi framkvæmdastjóri Virðingar, verður framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Virðingar.  

„Með samruna Auðar Capital og Virðingar verður til eitt stærsta og öflugasta verðbréfafyrirtæki landsins. Heildareignir í stýringu hjá sameinuðu félagi verða allt að 100 milljarðar króna og heildareignir í fjárvörslu allt að 180 milljarðar króna. Styrkur félagsins eflist sérstaklega á sviði eignastýringar en félagið mun meðal annars reka verðbréfasjóði, veðskuldabréfasjóði, framtakssjóði og ýmsa aðra fagfjárfestasjóði. Félagið veitir einnig þjónustu á sviði  verðbréfamiðlunar  og fyrirtækjaráðgjafar,“ segir í tilkynningu. 

Sameinað félag byggir á þeim grunni gilda og starfshátta sem einkennt hafa starfsemi Auðar Capital og Virðingar. Það verður sjálfstætt og óháð í þeim skilningi að félagið mun ekki eiga viðskipti fyrir eigin reikning og jafnframt vera í dreifðu eignarhaldi lífeyrissjóða, fagfjárfesta og einstaklinga þar sem enginn einn hluthafi fer með meira en 10% eignarhlut. 

„Félögin eru áþekk að stærð og starfsemi og byggja á gildum sem eru af sama meiði. Ábyrg ávöxtun, traust þjónusta og óhæði hafa einkennt rekstur þeirra beggja. Þetta er góður grunnur til þess að byggja á nýtt félag sem mun sækja fram á sínum aðalsviðum og efla vöru- og þjónustuframboð sitt,“ er haft eftir Hannesi Frímanni Hrólfssyni, verðandi framkvæmdastjóri Virðingar hf., í tilkynningu.

„Með sameiningu þessara tveggja félaga er búið til öflugt og sjálfstætt verðbréfafyrirtæki sem getur þjónað viðskiptavinum sínum enn betur en áður.  Rekstrarfélag Virðingar eflist mikið í þessum samruna en fyrirhugað er að öll eignastýring verði sameinuð í rekstrarfélaginu“, er haft eftir Friðjóni Rúnari Sigurðssyni, verðandi framkvæmdastjóra Rekstrarfélags Virðingar hf.

Virðing hf. tekur formlega til starfa í núverandi húsakynnum Auðar Capital að Borgartúni 29 fyrir næstu mánaðamót, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK