Tilbúnir í samstarf um lausn gjaldeyrishaftanna

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fundaði í gær með Michel Barnier, sem fer með málefni inni markaðarins í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Barnier sagði Evrópusambandið ákveðið í því að halda virkni EES samningsins. Hann sagðist skilja stöðu Íslands vegna gjaldeyrishaftanna og vonast til þess að úr þeim leysist sem fyrst. ESB væri tilbúið til samstarfs um lausn gjaldeyrishaftanna innan EES-samningsins, samkvæmt fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

„Samstarf ESB og EES ríkjanna um innri markað og framkvæmd EES-samningsins er mikilvægt fyrir okkur öll.  Í 20 ár hefur samningurinn verið okkur farsæll og einfaldað viðskipti innan Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins,“ sagði Gunnar Bragi, samkvæmt tilkynningu.

Eins fundaði utanríkisráðherra einnig með Kristni Árnasyni framkvæmdastjóra Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA. Þeir ræddu stöðu fríverslunarsamninga hjá samtökunum og mögulega framvindu þeirra á næstunni.

Einnig fundaði Gunnar Bragi með Stine Andresen, framkvæmdastjóra uppbyggingarsjóðs EFTA. Kom fram mikil ánægja með verkefni sem Íslendingar hafa unnið að og þá sérstaklega mennta- og rannsóknastofnanir sem hafa tekið virkan þátt í starfi sjóðsins, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK