Mesti farþegafjöldi frá stofnun

Icelandair flutti í júlímánuði 355 þúsund farþega í millilandaflugi, og er það mesti fjöldi sem ferðast hefur með félaginu á einum mánuði frá stofnun félagsins. Aukningin frá sama mánuði á síðasta ári er 16%. Icelandair Group var stofnað árið 2005 en Icelandair á rætur sínar að rekja til ársins 1937 þegar Flugfélag Akureyrar var stofnað. 

Eru þetta ekki einu tímamót félagsins, en var þetta í fyrsta skiptið sem félagið flytur fleiri farþega á milli landa í einum mánuði heldur en íbúafjöldinn er á Íslandi. 

Framboðsaukningin á milli ára nam 19% og var sætanýtingin í ár 85,9% samanborið við 86,1% í fyrra. 

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru 32 þúsund í júlí og var það nánast sami fjöldi og í júlí í fyrra. Fjöldi gistinótta á hótelum Icelandair Group var einnig svipaður og árið áður. Alls voru 41.540 gistinætur voru seldar í júlí í ár, samanborið við 41.416 í júlí í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK