Samskip hafna ásökunum um samkeppnisbrot

Samskip.
Samskip. mbl.is/Sigurður Bogi

Samskip vísar á bug ásökunum um samkeppnisbrot sem fram komu í umfjöllun RÚV í gær. „Fyrir liggur að Samkeppniseftirlitið ákvað í september 2013 að hefja rannsókn á Samskipum en engar niðurstöður liggja fyrir úr þeirri athugun,“ segir í tilkynningu frá Samskip um málið.

„Samkvæmt umfjöllun RÚV sendi Samkeppniseftirlitið málið til meðferðar hjá sérstökum saksóknara í mars síðastliðnum. Félaginu er ekki kunnugt um að ákvörðun hafi verið tekin um rannsókn málsins þar og engin ákæra hefur verið gefin út hvorki á hendur forstjóra félagsins né öðrum starfsmönnum þess.
 
Í þessu ljósi telja Samskip ekki rétt að tjá sig frekar um málið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK