iSTV greiðir ekki fyrir sýnt efni

iSTV
iSTV

Þáttargerðarfólk hjá sjónvarpsstöðinni iSTV hefur ekki fengið greitt fyrir vinnu sína í sumar samkvæmt heimildum mbl. Stjórnarmaður fyrirtækisins segir skiptar skoðanir um þá reikninga sem stöðinni hafa borist.

„Við erum aðeins að þreifa á þessum málum. Þetta er í vinnslu og skýrist vonandi á næstu dögum,“ segir Baldvin Heimisson, stjórnarmaður hjá iSTV. Útsendingum sjónvarpsstöðvarinnar hefur verið hætt í bili en starfsemin hófst þann 17. júlí sl.  Þorsteinn Steingrímsson, stjórnarformaður stöðvarinnar, sagði á mánudaginn í samtali við mbl að verið væri að end­ur­skipu­leggja fyr­ir­tækið og safna nýju efni. Stefnt er að því að hefja aftur útsendingar í kringum áramótin.

Þáttargerðarfólkið átti að afla auglýsinga

Baldvin segir að búið sé að borga flestum eitthvað en ágreiningur sé hins vegar um vinnsluaðferðir. Hann segir að upphaflega hafi þáttagerðarfólkið átt að afla kostunaraðila og auglýsinga fyrir þættina á eigin vegum.

Það hafi hins vegar breyst í meðförum stjórnenda en heimild aldrei verið fengin hjá stjórn félagsins. „Þess vegna fór þetta úr böndunum,“ segir Baldvin. „Svo er núna búið að borga fólkinu fyrir hluta vinnunnar en við eigum eftir að leysa úr einhverjum vandamálum,“ segir Baldvin.

Vantar nýja hluthafa

Fram­kvæmda­stjóri, markaðsstjóri og dag­skrár­stjóri sjón­varps­stöðvar­inn­ar, þeir Jón E. Árna­son, Björn T. Hauks­son og Guðmund Tý Þór­ar­ins­son, hættu allir störfum í september og báru við trúnaðarbresti og sam­starfs­örðug­leikum við stjórn og aðal­eig­end­ur sjón­varps­stöðvar­inn­ar. Þorsteinn sagði þá í samtali við mbl að fyrrnefndir samstarfsörðuleikar fælust líklega í því að þeir hafi talið sig geta stýrt stöðinni sjálf­ir eins og þeir vildu, skuld­sett hana eins og þeir vildu en aðrir fengið að borga brús­ann. „Aðal erfiðleik­arn­ir voru þeir að þess­ir hlut­haf­ar voru með aðra sýn á rekst­ur stöðvar­inn­ar en þeir sem héldu á pen­inga­mál­un­um,“ sagði Þorsteinn. Að sögn Baldvins eru ekki komnir nýjir hluthafar í þeirra stað en verið er að vinna að því.

Teymið er stóð á bak við ISTV í upphafi. Mummi, …
Teymið er stóð á bak við ISTV í upphafi. Mummi, Jóna María Haf­steins­dótt­ir, Kol­brún Ingi­bergs­dótt­ir, Har­ald­ur Sig­ur­jóns­son, Sig­ur­jón Har­alds­son, Jón E. Árna­son, Aðal­heiður Sigrún­ar­dótt­ir og Bonni. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK